Ágúst 1968, Norræna húsið. Síðasta hönd lögð á Norræna húsið. Maggi Jónsson arkitekt t.v. og Bergsveinn Magnússon trésmiður virða fyrir sér finnskt útiljós.
Maí-júní 1963, byggingaframkvæmdir, Túngata 14, Hallveigarstaðir. Ólafur Jensson, framkvæmdastjóri og Þorvaldur Karlsson, yfirsmiður. Myndin er tekin stuttu áður en byrjað var að slá upp fyrir fyrstu hæðinni.
365 leiklist Leikfélag Reykjavíkur Íslendingaspjöll 01
1970-1979
leikari
Leikfélag Reykjavíkur
leiklist
Október 1974, Leikfélag Reykjavíkur, revían Íslendingaspjöll eftir Hrafn Gunnlaugsson og Davíð Oddsson. Karl Guðmundsson og Guðmundur Pálsson í hlutverkum sínum.
28. febrúar 1968, flóð í Elliðaánum vegna leysinga og úrkomu. Menn að bjarga hestum úr hesthúsum í hesthúsahverfi sem kallað var Kardemommubær og stóð á svokölluðum Vatnsendahólmum á austurbakka Elliðaánna.
Febrúar 1968, Elliðaárdalur í Reykjavík. Flóð í Elliðaánum vegna leysinga og úrkomu. Menn að bjarga hestum úr flóðinu. Hluti af myndinni birtist í Vísi 28. febrúar 1968 með eftirfarandi myndatexta: „Gunnar Eyjólfsson náði fyrsta hestinum yfir. Hann reið eftir veginum, upp strauminn ásamt öðrum manni og fann vað fyrir ofan hesthúsin. Nokkrir aðrir fóru þá leiðina, þótt flestir hafi farið með hrossin niðurfyrir.“
28. febrúar 1968, flóð í Elliðaánum vegna leysinga og úrkomu. Hópur af mönnum að skoða aðstæður, fjær er hesthúsahverfi sem kallað var Kardemommubær og stóð á svokölluðum Vatnsendahólmum á austurbakka Elliðaánna. Björgunaraðgerðir til að bjarga hestum úr hesthúsum.