Júlí 1963, röð af nýfæddum börnum. Myndataka merkt á fæðingadeildinni. Mynd úr sömu myndatöku birtist með frétt í Alþýðublaðinu 31. júlí 1963 þar sem fjallað var um íbúafjölda á Íslandi og að Ísland væri með hæsta fæðingahlutfall í Evrópu.
4. september 1963, Kvikmyndafélagið Geysir. Í Alþýðublaðinu segir: Þessi mynd er tekin nokkru áður en leiðangurinn leggur upp í kvikmyndatökuferðina. Þar sjást, talið frá vinstri: Guðbjartur Pálsson, Gísli Gestsson, William Lubschansky, Reynir Oddsson og Halldór Eyjólfsson frá Rauðalæk.
1972, Öskjuhlíð, abstraktverk málað á byggingu. Við hlið byggingarinnar eru rústir frá hernum. Fyrir framan eru smárútur og bjöllur lagðar í stæði. Í töku sést einnig braggi. Sennilega bílaleiga Loftleiða.
Ágúst 1963, Listamannaskálinn. Nína Tryggvadóttir og Jóhannes Jóhannesson ásamt ónafngreindum manni. Sýningin var fyrsta sýning Nínu eftir átta ára hlé.
Ágúst 1963, Listamannaskálinn. Listakonan Nína Tryggvadóttir á sýningu sinni í Listamannasálanum. Sýningin var sú fyrsta eftir átta ára sýningarhlé hjá Nínu.
Ágúst 1963, Listamannaskálinn. Listakonan Nína Tryggvadóttir á sýningu sinni í Listamannasálanum. Sýningin var sú fyrsta eftir átta ára sýningarhlé hjá Nínu.
2. júlí 1964, sennilega við Mývatn, Filippus prins, hertogi af Edinborg, stígur út úr bifreið. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur t.v. við prinsinn. Philip hertogi af Edinborg.
Júlí 1963, Reykjavík. Verslun með bílalúgu. Maður að versla dósir af niðursoðnu kjöti í gegnum bílalúgu, m.a. kindakjöt frá pylsugerð KEA. Myndataka merkt: Myndir úr ýmsum búðum sem sýna hvað hægt sé að gera í Reykjavík úr bíl.
19. júlí 1963, Rauðarárstígur í Reykjavík. Eldsvoðið, gasverksmiðjan Ísaga hf brennur. Tveir slökkviliðsmenn á vettvangi brunans daginn eftir, þeir skoða Alþýðublaðið.
Ágúst 1970, Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Dr. Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur. Myndataka í tengslum við rannsókn á eðli gæðarýrnunar á eggjahvítuefnum (próteinum) í fiskimjöli.
29. ágúst 1963, Reykjavíkurhöfn. Togarinn Milwood A 472 frá Aberdeen lætur úr höfn eftir u.þ.b. fjögurra mánaða viðlegu í Reykjavíkurhöfn. Landhelgisgæsla Íslands stóð skipið að meintum ólöglegum veiðum við Skaftárós í apríl sama ár og eftir um 12 tíma eltingaleik var togaranum snúið til hafnar.
25. ágúst 1963, Reykjavíkurflugvöllur, svokallaður Flugdagur haldin hátíðlegur. Flugvél hefur sig á loft, Glófaxi TF-ISA. Í sömu myndatöku eru fleiri myndir af ýmiskonar loftförum, m.a. svifflugvél, flugvélar frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, m.a. Super Constellation, Neptune, þyrla og minni orustuþotur.
29. ágúst 1963, ullarverksmiðjan Álafoss. Starfsmaður að vinna við garnþvottavél. Í sömu myndatöku, sem er merkt: Framkvæmdir og stækkun Álafoss verksmiðjunnar, eru fleiri myndir teknar innan í verksmiðjunni, einnig nýbygging að utan og nokkrir menn, m.a. Ásbjörn Sigurjónsson.