1981, sundmót Reykjavíkur í Laugardalslaug.
Nokkrir sundmenn á bakkanum á lauginni gera sig klára að henda einum sundmanni út í laug.
Fólk í stúku fylgist með.
23. mars 1972, Sundhöll Reykjavíkur, 35 ára afmæli. Sundgestir fá sér veitingar á sundlaugarbakkanum, kaffi og rjómatertu. Þorsteinn Baldursson situr á bakkanum
23. mars 1972, Sundhöll Reykjavíkur, 35 ára afmæli. Sundgestir fá sér veitingar á sundlaugarbakkanum, kaffi og rjómatertu. Lengst til vinstri er Unnur Jónasdóttir að hella kaffi í bolla. Maðurinn í skyrtunni fyrir aftan er Jónas Halldórsson sundkennari og starfsmaður Sundhallarinnar.