2. ágúst 1974, Austurstræti í Reykjavík. Mannfjöldi í miðbænum er brjóstmynd af Tómasi Guðmundssyni skáldi var afhjúpuð. Athöfnin var hluti af hátíðardagskrá í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Verkið gerði Sigurjón Ólafsson myndhöggvari.
3. ágúst 1974, Lækjartorg í Reykjavík. Á torginu er höggmyndasýning sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík setti upp í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Fyrir miðju er verk á sýningunni, Gullinn bíll eftir Rúrí (Þuríður Fannberg). Gullhúðaður Mercedes Benz 220.
Ágúst 1974, Austurstræti og Lækjartorg í Reykjavík. Mannlíf, hátíðarhöld í tilefni 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Yfir fólkið gnæfir höggmynd eftir Sigfús Thorarensen, verk sem var á höggmyndasýningu sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík setti upp af þessu tilefni.
3. ágúst 1974, Lækjargata í Reykjavík. Mannlíf á þjóðhátíð í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 874-1974. Á miðri mynd f.v. eru: Sigríður Sveinbjarnardóttir, Sigríður Þórhallsdóttir, Kristján Árnason og Sigrún Elínborg Árnadóttir. Drengurinní kerrunni er Árni Heimir Ingólfsson.
Ágúst 1974, Lækjartorg í Reykjavík. Verið að undirbúa torgið fyrir hátíðarhöld í tilefni 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Verið að setja upp skúlptúr, verk sem var hluti af höggmyndasýningu sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík setti upp af þessu tilefni.
Ágúst 1974, Austurstræti og Lækjartorg í Reykjavík. Mannlíf, hátíðarhöld í tilefni 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Yfir fólkið gnæfir höggmynd eftir Sigfús Thorarensen, verk sem var á höggmyndasýningu sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík setti upp af þessu tilefni.
Um 1930-1940, yfirlitsmynd yfir Lækjartorg og nágrenni. M.a. Bankastræti, Kalkofnsvegur, kolakraninn Hegrinn, spennustöð og fleira. Fólk og bílar á ferð.
1. ágúst 1974, Lækjartorg í Reykjavík. Verið að undirbúa torgið fyrir hátíðarhöld í tilefni 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Fyrir miðju er höggmynd eftir Sigfús Thorarensen, verk sem var á höggmyndasýningu sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík setti upp af þessu tilefni.
1. ágúst 1974, Lækjartorg í Reykjavík. Verið að undirbúa torgið fyrir hátíðarhöld í tilefni að 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Fólk að skoða höggmynd eftir Sigfús Thorarensen, verk sem var á höggmyndasýningu sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík setti upp að þessu tilefni.
Um 1930-1935, gatnamót Lækjargötu og Bankastrætis. Sér upp Bankastræti. Mannlíf, fólk á ferð, t.v. glittir í blaðasala. Bankastræti 2 t.h., Stjórnarráðið og Bankastræti 3, Herbertsprent t.v.