Júní 1955, bridgesveit lögreglunnar í Reykjavík er vann bridge-keppni á milli lögreglunnar og Slökkviliðs Reykjavíkur. Myndin birtist í Morgunblaðinu með eftirtöldum nöfnum: Aftari röð talið f.v.: Trausti Eyjólfsson,
Guðmundur Sigurgeirsson, Bjarki Elíasson, Hjörtur Elíasson, Óskar Friðbjörnsson og Tryggvi Friðlaugsson. Fremri röð f.v.: Sigurður Jónsson, Bjarni Jónsson, Pálmi Jónsson og Örn Guðmundsson.
Júní 1955, bridgesveit lögreglunnar í Reykjavík fær afhentan verðlaunabikar fyrir sigur í bridge-keppni á milli lögreglunnar og Slökkviliðs Reykjavíkur.
30. júní 1993, kröfuganga samkynhneigðra leggur af stað frá Lindargötu. Hommar og lesbíur í mótmælagöngu. Mótmælendur með kröfuspjöld. Samtökin '78. Lögregla á mótorhjóli ásamt göngufólki.
6. febrúar 1959, Laugarnesvegur. Lögreglumaður og ungur maður á bifhjóli í gufumekki frá borholu. Mynd úr sömu myndatöku birtist í Morgunblaðinu daginn eftir, þar segir m.a.: „Ljósmyndari blaðsins tók þessa mynd um hádegisbilið í gær á Laugarnesveginum, nálægt stóru borholunni. Vegfarendur og jafnvel strætisvagnar hurfu inn í gufumökkinn, þó búið væri að loka fyrir sjálft gosið“.
11. apríl 1962, Hæðargarður, Hólmgarður í Reykjavík. Björn Jónsson lögreglumaður ræðir við börn úti á götu. Myndir úr sömu myndatöku birtust í Morgublaðinu undir fyrirsögninni: „Sérstakt barnaeftirlit lögreglunnar“.
Júní 1963, Nauthólsvík. Sýning á björgunarfleka til björgunar úr sjávarháska. Heildverslunin G. Helgason & Melsted sýnir nýja gerð af björgunarfleka sem Walter Tangen í Noregi framleiðir. Lögreglumennirnir Eyjólfur Jónsson og Halldór Einarsson sýna meðferð flekans. Myndin birtist í Morgunblaðinu 22.6.1963 með umfjöllun um „Fljótandi snjóhúsið“.
21. maí 1963, eldsvoði, Laugavegur 11 í Reykjavík brennur. Málverkum, tækjum og fleiru bjargað úr vinnustofu Jóhannesar Geirs listmálara á efstu hæð. Lögreglumaður að tala í kallkerfi.
11. apríl 1962, Langholtsvegur í Reykjavík. Björn Jónsson lögreglumaður ræðir við unga stúlku. Myndir úr sömu myndatöku birtust í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni: „Sérstakt barnaeftirlit lögreglunnar“.