25. apríl 1915, Hafnarstræti í Reykjavík. Miðbæjarbruninn, einn mesti eldsvoði í sögu Reykjavíkur. Þessa nótt brunnu alls tólf hús í miðbænum, þar af tíu til ösku. Tveir menn létust í brunanum. Hópur fólks fylgist með hamförunum. Hægra megin við miðju er brunagaflinn á Hafnarstræti 8. Til hægri er Hafnarstræti 4 og til vinstri er Fálkahúsið, Hafnarstræti 1-3, en þessum húsum tókst að bjarga.
20. ágúst 1966, slökkviliðsmenn að störfum á vettvangi eldsvoða í Ingólfsstræti 9 í Reykjavík. Í húsinu er m.a. Ljósmyndastofa Péturs Thomsen. Myndin birtist í Morgunblaðinu daginn eftir þar sem fram kemur að um íkveikju var um að ræða og að nokkurt tjón hafi orðið á myndum og efnislager ljósmyndastofunnar.
21. maí 1963, eldsvoði, Laugavegur 11 í Reykjavík brennur. Málverkum, tækjum og fleiru bjargað úr vinnustofu Jóhannesar Geirs listmálara á efstu hæð. Lögreglumaður að tala í kallkerfi.