Um 1930-1940, yfirlitsmynd yfir Lækjartorg og nágrenni. M.a. Bankastræti, Kalkofnsvegur, kolakraninn Hegrinn, spennustöð og fleira. Fólk og bílar á ferð.
Um 1930-1935, gatnamót Lækjargötu og Bankastrætis. Sér upp Bankastræti. Mannlíf, fólk á ferð, t.v. glittir í blaðasala. Bankastræti 2 t.h., Stjórnarráðið og Bankastræti 3, Herbertsprent t.v.
Um 1920-1923, garðskáli á baklóð við Hellusund 7 / Bergstaðastræti 36 um vetur. Jóhanna Sigríður Þorsteinsdóttir móðir ljósmyndara stendur við garðskálann. Fjær glittir í Hellusund 3 og til hægri er Verslunarskóli Íslands, Grundarstígur 24.
25. apríl 1915, Hafnarstræti í Reykjavík. Miðbæjarbruninn, einn mesti eldsvoði í sögu Reykjavíkur. Þessa nótt brunnu alls tólf hús í miðbænum, þar af tíu til ösku. Tveir menn létust í brunanum. Hópur fólks fylgist með hamförunum. Hægra megin við miðju er brunagaflinn á Hafnarstræti 8. Til hægri er Hafnarstræti 4 og til vinstri er Fálkahúsið, Hafnarstræti 1-3, en þessum húsum tókst að bjarga.