Apríl 1965, Sundhöll Reykjavíkur. Sundmót Ægis og ÍBK. Verðlaunaafhending, talið f.v. Guðmundur Gíslason, Lars-Kraus Jensen, Davíð Valgarðsson og Ágústa Þorsteinsdóttir.
Apríl 1965, Sundhöll Reykjavíkur. Sundmót Ægis og ÍBK. Verðlaunaafhending, talið f.v. Guðmundur Gíslason, Lars-Kraus Jensen, Davíð Valgarðsson og Ágústa Þorsteinsdóttir.
Mars 1954, Sundhöll Reykjavíkur. Sundballettflokkur sunddeildar KR sem Sara Jane Donovan (Dolly Hermansson) stjórnaði. T.h. fyrir miðju er Edda Konráðsdóttir. Efst t.h. við konu í ljósari sundbol er Eyþóra Valdimarsdóttir.
Um 1946-1947, hópur af spariklæddu fólki. Talið f.v.: Guðjóna Olsen, systir ljósmyndara, Margrét Kristinsdóttir, eiginkona hans, Sjöfn Kristinsdóttir og ónafngreind. Litla stúlkan fremst er dóttir Margrétar, Ólöf Guðrún Magnúsdóttir (f. 1944). Þær standa við Sundhöll Reykjavíkur.
23. mars 1972, Sundhöll Reykjavíkur, 35 ára afmæli. Sundgestir fá sér veitingar á sundlaugarbakkanum, kaffi og rjómatertu. Lengst til vinstri er Unnur Jónasdóttir að hella kaffi í bolla. Myndin er tekin fyrir kl. 8 að morgni.
23. mars 1972, Sundhöll Reykjavíkur, 35 ára afmæli. Sundgestir fá sér veitingar á sundlaugarbakkanum. Tveir menn sitja á sundlaugarbakkanum og gæða sér á kaffi og rjómatertu. Myndin er tekin fyrir kl. 8 að morgni.
23. mars 1972, Sundhöll Reykjavíkur, 35 ára afmæli. Sundgestir fá sér veitingar á sundlaugarbakkanum, kaffi og rjómatertu. Myndin er tekin fyrir kl. 8 að morgni.
23. mars 1972, Sundhöll Reykjavíkur, 35 ára afmæli. Fjórir starfsmenn Sundhallarinnar, talið f.v. Jónas Halldórsson, Jóhanna Guðmundsdóttir, Ingibjörg Sigurgeirsdóttir og Hermann Hermannsson forstöðumaður. Þau þrjú fyrrnefndu höfðu unnið þar frá því að laugin opnaði 1937.
Mars 1977, heimsókn í Sundhöll Reykjavíkur í tilefni að 40 ára afmælis hennar. Maður, sennilega sundkennari stendur á bakkanum með gjallarhorn og leiðbeinir unglingum í lauginni.
Í sömu töku: krakkar að synda, einnig sturtur og búningsklefar, sundlaugavörður og mynd af byggingunni að framan.
Um 1960-1970, Bergþórugata, Sundhöll Reykjavíkur t.v. Vetrarfærð, snjór liggur yfir. Kona klædd kápu og með húfu í forgrunni. Guðrún Einarsdóttir við heimili sitt Bergþórugötu 57.