1947-1955, umferð og athafnalíf í Tryggvagötu, örtröð við bensínstöð BP, Olíuverslun Íslands, síðar OLÍS. Upp við Hafnarhúsið eru bifreiðar, f.v. Dodge-fólksbíll, vörubíll með ullarfarm og sennilega Humber-fólksbíll. Á Tryggvagötu er vörubíll með saltfarm.
Um 1945-1955, yfirlitsmynd yfir miðbæ Reykjavíkur. Séð í áttina að Menntaskólanum í Reykjavík, Lækjargötu, Bókhlöðustíg og Laufásvegi. Sér upp í Þingholtin. Mannfjöldi fyrir framan MR, hátíðarhöld.
Um 1958, úr Breiðafjarðareyjum. Fiskibátur með skráningarnúmerið BA 152, við hlið hans er árabátur á sjónum. Hópur fólks um borð, sennilega verið að ferja fólkið til lands.