Oops! Something went wrong! It doesn't appear to have affected your data. Please notify your system administrator if the problem persists.Access denied
Your session was expired. Page will be reloaded.
Processing...
Your assets are ready. If the download does not start automatically, click Download.
1. maí 1970, Hlemmur í Reykjavík, baráttudagur verkalýðsins. Kröfuganga gengur niður Laugaveginn. Laugavegur 25, steinbærinn, verslunin Dyngja er í húsinu. Laugavegur 27, verslunin Brynja Laugavegur 29.
1. maí 1970, Hlemmur í Reykjavík, baráttudagur verkalýðsins. Kröfuganga, konur krefjast jafnréttis og ganga með stórt kvenlíkneski. Talið f.v. Þuríður Magnúsdóttir, Erla Einarlína og Guðrún Friðbjörnsdóttir. „Manneskja ekki markaðsvara“ segir á borða sem liggur yfir brjóst líkneskisins.
8. maí 1971, Háskólabíó í Reykjavík. Fegurðarsamkeppni, ungfrú Ísland 1971. Erna Jóhannesdóttir, ungfrú Ísland 1970, afhendir keppendum sem komust í úrslit viðurkenningarborða. Á móti henni stendur Margrét Linda Björnsson, en hún lenti í öðru sæti. Við hlið hennar eru Sigríður Brynja Sigurðardóttir, sem lenti í þriðja sæti og Helga Óskarsdóttir en hún var kosin vinsælasta stúlkan.
8. maí 1971, Háskólabíó í Reykjavík. Fegurðarsamkeppni, ungfrú Ísland 1971. Keppendur koma fram á síðkjólum. Talið f.v.: Sigríður Brynja Sigurðardóttir, ungfrú Ísafjarðarsýsla 1970, ónafngreind ungfrú Árnessýsla 1970, Jenný Grétarsdóttir, fulltrúi Reykjavíkur 1971, Margrét Linda Björnsson, ungfrú Reykjavíkur 1971, Helga Ragnheiður Óskarsdóttir, ungfrú Reykjavík 1970, Helga Ólöf Halldórsdóttir, ungfrú Mýra- og Borgarfjarðarsýsla 1970, Oddný Runólfsdóttir, ungfrú Skaftafellssýsla 1970, Fanney Bjarnadóttir, ungfrú Vestmannaeyja 1970 og Guðrún Þórelfa Valgarðsdóttir, ungfrú Múlasýsla 1970. Guðrún Þórelfa sigraði keppnina og fékk titilinn Ungfrú Ísland 1971.
8. maí 1971, Háskólabíó í Reykjavík. Fegurðarsamkeppni, ungfrú Ísland 1971-1972. Þáttakendur sem komust í úrslit. Fyrir miðju er ungfrú Ísland, Guðrún Þórelfa Valgarðsdóttir. Fyrir aftan eru talið f.v.: Jenný Grettisdóttir (5. sæti), Sigríður Brynja Sigurðardóttir (3. sæti), Margrét Linda Björnsson (2. sæti) og Fanney Bjarnadóttir (4. sæti) en hún var einnig kosin besta ljósmyndafyrirsætan.
8. maí 1971, Háskólabíó í Reykjavík. Fegurðarsamkeppni, ungfrú Ísland 1971. Keppendur koma fram á sundbolum. Talið f.v.: Sigríður Brynja Sigurðardóttir, ungfrú Ísafjarðarsýsla 1970, ónafngreind ungfrú Árnessýsla 1970, Jenný Grétarsdóttir, fulltrúi Reykjavíkur 1971, Margrét Linda Björnsson, ungfrú Reykjavíkur 1971, Helga Ragnheiður Óskarsdóttir, ungfrú Reykjavík 1970, Helga Ólöf Halldórsdóttir, ungfrú Mýra- og Borgarfjarðarsýsla 1970, Oddný Runólfsdóttir, ungfrú Skaftafellssýsla 1970, Fanney Bjarnadóttir, ungfrú Vestmannaeyja 1970 og Guðrún Þórelfa Valgarðsdóttir, ungfrú Múlasýsla 1970. Guðrún Þórelfa sigraði keppnina og fékk titilinn Ungfrú Ísland 1971.
22. júní 1970, Led Zeppelin tónleikar í Laugardalshöll. Led Zeppelin á sviðinu, áhorfendur í sal. Söngvari hljómsveitarinnar Robert Plant í miklum ham..
10. október 1972, Helgi Hóseasson húsasmiður slettir skyri yfir þingmenn við setningu Alþingis. Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, þingmenn, biskup og forseti Íslands á leið í Alþingishúsið þegar Helgi hóf að sletta skyrblöndu úr fötu yfir fólkið. Sennilega Lúðvík Jósefsson sem beygir sig niður og reynir að forðast slettuna. Í fjarska er lögregluþjónn sem ekki er búinn að átta sig á framgöngu Helga.
20. júní 1970, Listahátíð í Reykjavík sett í Háskólabíó. Gylfi Þ. Gíslason afhendir Þorkeli Sigurbjörnssyni tónlistarverðlaun Listahátíðar. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Pákuleikarinn fyrir miðri mynd er Vlastimil Neubouer.
20. júní 1970, Listahátíð í Reykjavík sett í Háskólabíó. Gylfi Þ. Gíslason afhendir Þorkeli Sigurbjörnssyni tónlistarverðlaun Listahátíðar. Sinfóníuhljómsveit Íslands.