Oops! Something went wrong! It doesn't appear to have affected your data. Please notify your system administrator if the problem persists.Access denied
Your session was expired. Page will be reloaded.
Processing...
Your assets are ready. If the download does not start automatically, click Download.
Um 1901-1905, bærinn og kirkjustaðurinn Árnes í Trékyllisvík á Ströndum. Hópur fólks fyrir framan bæinn. Heimilisfólk, húsráðendur og vinnufólk. Í gluggunum sjást systkinin er Böðvar Eyjólfsson og Halldóra Kristín Leópoldína Eyjólfsdóttir. Í dyrunum stendur séra Eyjólfur Jónsson prestur Árnesi 1884-1909.
Um 1905, hópmynd af börnum í Ásgrímsskóla við Bergstaðastræti 3 í Reykjavík. Lengst til vinstri er Ásgrímur Magnússon skólastjóri. Barnaskóli Ásgríms Magnússonar.
1890, hópur fólks, farþegar og skipstjórnendur um borð í skipi. Gufuskipið, póstskipið Romny. Marta Berg, eiginkona Lauritz Berg hvalveiðimanns í Dýrafirði, ásamt fimm börnum þeirra. Einnig, kennslukona barnanna, skipstjóri og stýrimaður skipsins og ónafngreindur karlmaður með kúluhatt.
Ágúst 1926, hópmynd af fólki, allt atvinnuljósmyndarar. Talið frá vinstri; Magnús Ólafsson, Sigríður Zoega, Jón Kaldal, Steinunn Thorsteinsson, Óskar Gíslason, Loftur Guðmundsson, Sigurhans Vignir, Jón Dahlmann, Carl Ólafsson og Sigurður Guðmundsson.
Um 1901-1905, bærinn og kirkjustaðurinn Árnes í Trékyllisvík á Ströndum. Hópur fólks fyrir framan bæinn. Heimilisfólk, húsráðendur og vinnufólk. Í gluggunum sjást systkinin er Böðvar Eyjólfsson og Halldóra Kristín Leópoldína Eyjólfsdóttir. Í dyrunum stendur séra Eyjólfur Jónsson prestur Árnesi 1884-1909.
1892-1899, fjórar manneskjur á hestbaki fyrir utan timburhús. Líklega Skarðsstöð á Skarðsströnd í Dalasýslu. Aftan á kópíu stendur skrifað: Jón Andrésson, Guðrún Jónsdóttir Blöndal, Sigríður Guðmundsdóttir og Björn Andrésson.
1912, háskólastúdentar í Háskóla Íslands sitja fyrir í Alþingisgarðinum, fyrir utan Alþingishúsið þar sem Háskóli Íslands hafði aðsetur þegar myndin var tekin. Aftan á myndina hefur verið skrifað með blekpenna: Primi candidati philosophiae Universitatis Islandia eum magistro suo Anno MCMXII. Þar eru einnig nöfn fólksins, efri röð f.v.: Árni Jónsson frá Múla, Steindór Gunnlaugsson, Páll Pálmason, Jakob Kristinsson, Vilmundur Jónsson, Axel Böðvarsson og Þórhallur Jóhannesson. Neðri röð f.v.: Einar Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Ágúst H. Bjarnason (prófessor í heimspekideild), Pjetur Magnússon (Pétur Magnússon) og Jón Ólafsson Foss.

1900-1915, Austurstræti 4 í Reykjavík. Hús Thorvaldsensfélagsins. Til vinstri sést örlítið í Austurstræti 6, þar er Sápuverslunin til húsa þegar myndin er tekin.
1905-1914, rjómabú við Gufuá í Borgarhreppi. Hestur fyrir utan bygginguna, til hægri sést vel hvernig vatnsaflið var virkja til að knýja vélasamstæðu rjómabúsins, vatnsaflsvirkjun. Landbúnaður, mjólkurvinnsla.
1920-1925, færeyska fiskiskúta, kútter Navarsteinur TG 612 á siglingu fyrir þöndum seglum. Skútan strandaði við Íslandsstrendur, við Meðallandsfjöru, vorið 1925.