Oops! Something went wrong! It doesn't appear to have affected your data. Please notify your system administrator if the problem persists.Access denied
Your session was expired. Page will be reloaded.
Processing...
Your assets are ready. If the download does not start automatically, click Download.
1920-1930, tvær konur á hestbaki í Bankastræti og eru á tali við þriðju konuna sem er á gangi í Bankastræi. Í baksýn t.v. er Bankastræti 11 og við hlið þess er Laugavegur 1, verslunin Vísir. Konurnar eru prúðbúnar í kápum og með hatta og loðkraga.
1920-1930, Hverfisgata 21 í Reykjavík, steinsteypt hús. Hjónin Jón Magnússon forsætisráðherra og Þóra Jónsdóttir létu reisa það sem íbúðarhús en síðar eignaðist Hið íslenska prentarafélag húsið. Maður á gangi fyrir framan húsið á gangstétt, ljósastaur við götuna.
1930-1940, kona og leiðir barn, ungan dreng í matrósarfötum. Hún er klædd í kjól og með hvíta svuntu. Þau standa undir timburklæddum húsvegg. Sesselja Guðmundsdóttir systir ljósmyndara og sonur, Guðmundur Eðvaldsson síðar bóndi í Stöpum á Vatnsnesi.
Sennilega 1920-1940, Jón Gestur og Jón Leví Guðmundsson úrsmiður. Eldri maður klæddur vesti, keðja á vasaúri sést vel. Jón Leví er klæddur pokabuxum og ljósum sportlegum jaka og með derhúfu.
1930-1940, þrír menn um borð í skipi. Tveir eru klæddir í vinnuföt, málningagalla og sá í miðjunni heldur á pensli. Maðurinn t.v. er klæddur jakkafötum og með hatt. Lengsti til vinstri er Hafliði Jónsson (1884-1944) vélstjóri.
1930-1940, ung kona stödd um borð í bát, sennilega á skemmtisiglingu. Hún er kædd í kápu og með alpahúfu. Við hlið hennar sér í aðra konu með hatt og veski.
1930-1940, þrjár ungar konur borða nesti undir hlöðnum grjótvegg. Tvær þeirra eru með hatta á höfði en allar eru þær í kápum, tvær þeirra fá sér drykk úr flösku.
1925-1935, hópur fólks situr á heysátu er sennilega við heyskap. Konan með svarta hattinn er í stígvélum en hin eru á sauðsskinsskóm. Karlmennirnir eru með sixpensara á höfði. Sá sem situr lengst t.h. er með hund. Heimilisfólkið á Ásbjarnarstöðum, talið f.v. hjónin Loftur Þórarinn Jósefsson (1906-1964) og Margrét Guðmundsdóttir, Þórdís Gísladóttir (f. 1872) og Jósef Davíð Guðmundsson (1853-1936). Lengst til hægri er sonur Þórdísar og Jósefs: Guðjón Daníel Jósefsson (1909-1989). Maðurinn fyrir aftan þau er gestkomandi, Jón Leví Guðmundsson. Myndin er líklega tekin við Flatnisstaði á Vatnsnesi.
1925-1935, hópur fólks stilli sér upp til myndatöku við torfbæ. Heimilisfólk á Gnýsstöðum á Vatnsnesi og aðkomumenn. Hluti fólksins er á sauðskinnsskóm. Efst situr Marsibil Magdalena Árnadóttir (eldri kona með sjal utan um sig). Neðri röð f.v. Emelía Guðmundsdóttir, Sesselja Gunnlaugsdóttir (heldur á barni), Guðmundur Árnason, Árni Jón Guðmundsson, Gunnlaugur Árnason, Jóhannes Guðmundsson gullsmiður og sennilega vinnumaður, ónafngreindur.
1930-1940, eldri maður stendur undir bárujárnsvegg. Maðurinn er klæddur einhvers konar vinnugalla og er á sauðskinnskóm og með höfuðfat. Torfhlaðinn veggur er t.h.
1927-1930, kona og þrjú börn stilla sér upp til myndatöku í grasivaxinni brekku, t.v. er hundur. Konan og ung stúlka eru klæddar kjólum en strákarnir í frökkum og með höfuðföt. Á hatti yngri stráksins stendur "Havmanden". Fjölskyldan á Egilsstöðum á Vatnsnesi, f.v. Snorri Jóhannesson (?)(1917-2005), Jenný Jóhannesdóttir (f. 1916), Elín Rósa Bjarnadóttir (1895-1972), móðir barnanna og sennilega Bjarni Jóhannesson (1923-2001)
1930-1940, íbúðarhús í sveit, bóndabær, sveitabær. Gnýsstaðir á Vatnsnesi. Lítill afgirtur garður er við húsið og hluti af veggjunum er torfhleðsla. Hestur með aktygjum og vagn standa við húsið.