Oops! Something went wrong! It doesn't appear to have affected your data. Please notify your system administrator if the problem persists.Access denied
Your session was expired. Page will be reloaded.
Processing...
Your assets are ready. If the download does not start automatically, click Download.
Um 1947-1948, nautgripir við Grettisgötu 20 a í Reykjavík. Hjörleifur Guðbrandsson bóndi átti gripina. Á sumrin voru kýrnar reknar á hverjum degi á beitarlandi í Vatnsmýrinni, eftir Grettisgötu, upp Frakkarstíg og niður Njarðarstíg. Og síðan reknar heima að kvöldi.
Um 1947-1948, nautgripir við Grettisgötu 20 a í Reykjavík. Hjörleifur Guðbrandsson bóndi, sem stendur fyrir miðju með barn, Guðrún Hallfríður Bjarnadóttir, átti gripina. Á sumrin voru kýrnar reknar á hverjum degi á beitarlandi í Vatnsmýrinni, eftir Grettisgötu, upp Frakkarstíg og niður Njarðarstíg. Og síðan reknar heima að kvöldi.
Um 1947-1948, þrír hrútar á lóð við Grettisgötu 20 a í Reykjavík. Hjörleifur Guðbrandsson bóndi var með búskap á lóðinni við heimili sitt á Grettisgötu, m.a. með allt að 13 kýr í fjósi. Auk þess var hann fjárhús í Vatnsmýrinni fyrir allt að 100 kindur.
Um 1947-1948, maður, Hjörleifur Guðbrandsson kúabóndi með hest við Grettisgötu 20 a í Reykjavík. Hjörleifur rak kúabú við heimili sitt á Grettisgötu, m.a. með allt að 13 kýr í fjósi á lóðinni. Húsið til vintstri er geymsla með salttunnum, síðan tveir kamrar og hlaðna húsið var hlaða. Hjörleifur lét byggja hlöðuna svona því hann reiknaði með að hún yrði gerð að íbúðarhúsi seinna meir.