Oops! Something went wrong! It doesn't appear to have affected your data. Please notify your system administrator if the problem persists.Access denied
Your session was expired. Page will be reloaded.
Processing...
Your assets are ready. If the download does not start automatically, click Download.
Um 1960-1965, landslið Íslands í knattspyrnu karla gengur af velli. Þórólfur Beck gengur fremst og hægra megin við hann er Árni Njálsson. Laugardalsvöllur.
September1959, lið KR í knattspyrnu karla á Laugardalsvelli. Mynd sennilega tekin eftir úrslitaleik íslandsmótsins i knattspyrnu, KR og ÍA kepptu. Íslandsmeistarar KR 1959. Helgi Jónsson, Öm Steinsen, Sveinn Jónsson, Þórólfur Beck, Gunnar Guðmannsson, Hreiðar Ársælsson, Garðar Árnason og Hörður Felixson.Óli B. Jónsson, Þorsteinn Kristjánsson, Bjarni Felixson, Reynir Þórðarson, Heimir Guðjónsson, Gísli Þorkelsson, Óskar Sigurðsson
og Ellert Schram.
1961, Íslandsmeistaramót í knattspyrnu. Úrslitaleikur á Laugardalsvelli, KR og ÍA keppa. Björgvin Schram nælir verðlaunamedalíu í barm knattspyrnuliðs KR. Sennilega Þórólfur Beck þriðji frá hægri, Hörður Felixson og Ellert B. Schram.
1961, Íslandsmeistaramót í knattspyrnu. Úrslitaleikur KR og Akranes, íA á Laugardalsvelli. Fyrirliði KR, Gunnar Guðmansson heldur á bikarnum. Þórólfur Beck sjötti frá hægri.
1961, Íslandsmeistaramót í knattspyrnu. Úrslitaleikur á Laugardalsvelli, KR og ÍA keppa. Lið KR stillir sér upp með bikarnum. Íslandsmeistarar KR 1961. Sigurður Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar KR, ÓIi B. Jónsson, þjálfari, Óskar Sigurðsson, Heimir Guðjónsson, Gísli Þorkelsson, Garðar Árnason. Ellert Schram, Hörður Felixson, Gunnar Felixson, Örn Steinsen, Reynir Schmidt, Hreiðar Ársælsson, Helgi Jónsson, fyrirliði, Gunnar Guðmannsson, Þórólfur Beck, Bjarni Felixson og Leifur Gíslason.
13. september 1972, Bernabeu leikvangurinn í Madrid. Bikarkepni UEFA, knattspyrnuleikur á milli Real Madrid og ÍBK (Íþróttabandalag Keflavíkur). Grétar Magnússon leikmaður Keflvíkinga skiptist á treyju við einn leikmann mótherjanna að leik loknum. Fyrir aftan ganga m.a. Gísli Torfason, Ástráður Gunnarsson, Steinar Jóhannsson og Guðni Kjartansson. Real Madrid vann leikinn 3-0.
13. september 1972, Bernabeu leikvangurinn í Madrid. Bikarkepni UEFA, knattspyrnuleikur á milli Real Madrid og ÍBK (Íþróttabandalag Keflavíkur). Leikmenn að ganga af velli, m.a. Gísli Torfason, Ástráður Gunnarsson, Steinar Jóhannsson og Karl Hermannsson. Real Madrid vann leikinn 3-0.
4. ágúst 1974, þjóðhátíð í Reykjavík. Hátíðardagskrá á Laugardalsvelli. Skák með lifandi taflmönnum, Friðrik Ólafsson og Svein Johannesen Noregsmeistari í skák telfdu.
4. ágúst 1974, þjóðhátíð í Reykjavík. Hátíðardagskrá á Laugardalsvelli. Skák með lifandi taflmönnum, Friðrik Ólafsson t.h. og Svein Johannesen Noregsmeistari í skák telfdu.
4. ágúst 1974, þjóðhátíð í Reykjavík. Hátíðardagskrá á Laugardalsvelli. Skák með lifandi taflmönnum, Friðrik Ólafsson og Svein Johannesen Noregsmeistari í skák telfdu. Svein Johannesen tekur við viðurkenningu.
4. ágúst 1974, þjóðhátíð í Reykjavík. Hátíðardagskrá á Laugardalsvelli. Skák með lifandi taflmönnum, Friðrik Ólafsson t.h. og Svein Johannesen Noregsmeistari í skák telfdu.
Um 1965-1970, skákmót. Tveir menn sitja við skákborð að tefla. Friðrik Ólafsson t.v. og Guðmundur Sigurjónsson fylgjast með mönnunum tefla. Í baksýn eru stór skákborð til skákskýringa.
9. desember 1956, Sigurður Sigurðsson íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins tekur viðtal við Vilhjálm Einarsson við komuna frá Ástralíu, þar sem Vilhjálmur varð í öðru sæti í þrístökki á Ólympíuleikunum. Ólympíuleikarnir í Melbourne.
Um 1955-1960, verslun, matvöruverslun. Fjórar konur klæddar hvítum sloppum bak við afgreiðsluborð. Niðursuðudósir og matvara í hillum, sælgæti í afgreiðsluborði.