Oops! Something went wrong! It doesn't appear to have affected your data. Please notify your system administrator if the problem persists.Access denied
Your session was expired. Page will be reloaded.
Processing...
Your assets are ready. If the download does not start automatically, click Download.
Júlí 1963, Reykjavík. Verslun með bílalúgu. Maður að versla dósir af niðursoðnu kjöti í gegnum bílalúgu, m.a. kindakjöt frá pylsugerð KEA. Myndataka merkt: Myndir úr ýmsum búðum sem sýna hvað hægt sé að gera í Reykjavík úr bíl.
19. júlí 1963, Rauðarárstígur í Reykjavík. Eldsvoðið, gasverksmiðjan Ísaga hf brennur. Tveir slökkviliðsmenn á vettvangi brunans daginn eftir, þeir skoða Alþýðublaðið.
5. maí 1971, utanríkisráðuneytið, hernaðarandstæðingar og friðarsinnar „hertaka“ ráðuneytið til að mótmæla þátttöku Íslands í hernaðarbandalagi og veru Bandaríkjahers á landinu. Tilefnið var að þennan dag voru 20 ár frá því að varnarsamningur á mili Íslands og Bandaríkjanna var undirritaður. Æskulýðsfylkingin.
1971, Reykjavíkurhöfn, Loðnubátar við bryggju, m.a. Þórður Jónasson EA 350. Í sömu myndatöku eru fleiri myndir af athafnarlífi við höfnina. M.a. Árni Magnússon GK 5 og Ásgeir RE 60.
1971, Reykjavíkurhöfn. Hafnarverkamenn við vinnu. Löndun úr togara. Í sömu myndatöku eru fleiri myndir af athafnarlífið við höfnina, m.a. togarinn Neptúnus RE 361 við bryggju, fleiri hafnarverkamenn, togarinn Marz RE 261 upp í slipp, fiskvinnsla o.fl.
13. maí 1966, Kollafjörður, Laxeldi. Tveir menn að merkja laxaseiði. Tilrauna- og eldisstöð veiðimálastjórnar í Kollafirði. Sá til vinstri er Einar Hannesson fulltrúi veiðimálastjóra. Í sömu myndatöku eru fleiri myndir og fleiri menn, einn þeirra gæti vel verið Þór Guðjónsson veiðimálastjóri.
Maí 1966, svefniherbergi í íbúðarhúsi í Reykjavík, Suðurlandsbraut 58. Myndataka merkt: „Kofagarmur í Gunnarsborg, Silja Guðlaugsdóttir“. Myndir úr sömu myndatöku birtust á forsíðu Alþýðublaðisins 6. maí 1966, stuttu fyrir borgarstjórnarkosningar, ásamt viðtali við húsráðanda. Í húsinu sem var um 20 fermetrar bjó einstæð móðir með 7 börn við afar slæmar aðstæður. Í skápnum sem sést á myndinni sváfu þrjú börn á aldrinum 7 til 10 ára.
12. maí 1966, Melavöllur í Reykjavík. Árleg bæjarkeppni í knattspyrnu á milli Reykjavíkur og Akranes. Lið Reykjavíkur vann leikinn með 3-1. Hér er Hermann Gunnarsson úr Val að skora fyrsta mark heimamanna.
16.febrúar 1966, Reykjavíkurflugvöllur. Veikur drengur sóttur til Grænlands. Drengurinn var sóttur til Angmasalik á austurströnd Grænlands. Flugstjórar í ferðinni voru Jóhannes Snorrason og Þorsteinn Jónsson og í sömu myndatöku eru myndir af þeim. Einnig myndir af flugvél, Glófaxi TF-ISA, farþegar að koma út úr flugvélinni o.fl.